
Overcast ehf.



11-50
starfsmenn
Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og trúum því að með auknum sveigjanleika náum við markmiðum okkar betur og sköpum umhverfi sem er betra fyrir alla.
Við rekum ekki mötuneyti, en erum umkringd veitingastöðum og verslunum þar sem fyrirtækið niðurgreiðir kostnað við hádegismat.
Almennt er miðað við að vinnudeginum sé lokið á milli kl 8 og 18 á virkum dögum. Stundum hentar það þér og stundum ekki, en á meðan við tölum saman um það, þá er áræðanlega hægt að finna flöt á öllu.
Starfsmannafélag Overcast sér um reglulegar skemmtanir yfir árið, sem ná allt frá skemmtilegum spilakvöldum til ótrúlegra utanlandsferða með mökum.
Heilbrigð sál í hraustum líkama! Við bjóðum öllum fastráðnum starfsmönnum upp á líkamsræktarstyrk sem nemur 81.000 kr á ári.
Við vinnum eingöngu með það besta, hvort sem um er að ræða nýlegar Macbook Pro vélar, upphækkanleg skrifborð eða stóla. Þú verður alltaf með rétta búnaðinn fyrir verkefnið sem þú ert að vinna.
Við erum með skrifstofu á Höfðabakka 9D sem við innréttuðum með það í huga að búa til hlýlegt umhverfi þar sem sköpun, samskipti og fyrsta flokks hljóðvist fær að njóta sín.

Engin störf í boði



