Noona

Noona

Vinnustaðurinn
Noona
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
👀 Ef þú myndir ganga til liðs við okkur í dag værir þú að koma inn í ungt fyrirtæki á einstökum tíma. Við tókum inn nýtt fjármagn fyrr á árinu, með það fyrir augum að byggja heimsklassa teymi og dreifa Noona erlendis. Við hófum starfsemi og sölu í Portúgal og Tékklandi á þessu ári og munum gera slíkt hið sama á fleiri mörkuðum á næstu mánuðum. Við erum lítill hópur forvitinna einstaklinga með opinn hug fyrir öllu og öllum. Við höfum margra ára reynslu af hugbúnaðargerð og höfum lært af mörgum mistökum á leiðinni. Þó við séum fjölbreyttur hópur þá deilum við ákveðnum prinsippum sem er ætlað að hjálpa okkur að tala saman og vera sammála um hvernig við nálgumst þá milljón hluti sem þarf alltaf að gera. Hreinskilni innanhús, við viðskiptavini og umheiminn. Þolinmæði, því gæði taka tíma. Gagnsæi, svo að allir séu á sömu blaðsíðu. Forvitni sem leiðir áfram sífelldar framfarir. Þó svo við höfum mikla trú á þeim gildum sem hafa leitt okkur áfram hingað til er fyrirtækið enn nægilega ungt til að breytast. Eftir því sem teymið stækkar mun erfðamengi fyrirtækisins vonandi gera það líka.
Katrínartún 4, 105 Reykjavík

1-10

starfsmenn

2014

stofnár

Fjarvinna

Þú getur valið á milli þess að vera með prívat skrifstofu, að vinna í sameiginlegu rými eða að vinna að heiman.

Búnaður

Við ráðningu færðu tölvu og öll tól sem þú þarft til að sinna þinni bestu vinnu.

Vinnutími

Svo lengi sem þú klárar verkefnin þín á réttum tíma, skiptir það okkur minna máli hvenær þú gerir þau.

Skemmtun

Ein utanlandsferð og tvær innanlands-skemmtanir á ári, og fjör þess á milli.

Nýjustu störfin

Engin störf í boði