Nói Síríus

Nói Síríus

Vinnustaðurinn
Nói Síríus
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Nói Síríus er rótgróið og öflugt fyrirtæki á matvælamarkaði. Hjá Nóa Síríus starfar samhentur hópur um 120 starfsmanna sem hefur það sameiginlega markmið að gleðja bragðlauka þjóðarinnar. Til þess er fjöldi sælgætistegunda framleiddur í glæsilegum húsakynnum fyrirtækisins að Hesthálsi 2-4. Síríus súkkulaðið hefur verið ómissandi hluti af hátíðarstundum Íslendinga í tæp níutíu ár og Nói Síríus einsetur sér að vera í hópi leiðandi fyrirtækja á sínu sviði. Það gerir fyrirtækið með því að bjóða eftirsóknarverða gæðavöru og þjónustu sem standast ýtrustu kröfur viðskiptavina á alþjóðlegan mælikvarða. Vöruþróun skipar að auki stóran sess í starfsemi Nóa Síríusar og nýjungar fyrirtækisins líta reglulega dagsins ljós í hillum verslana, Íslendingum til mikillar ánægju. Nói Síríus telur að bestum árangri sé náð í starfi þegar þekking og færni starfsfólks fá að njóta sín og einstaklingurinn finnur til ábyrgðar. Í slíku andrúmslofti leggjast allir á eitt og skapa traustan grunn að öflugum rekstri. ______ Nói Síríus is a well-established and powerful company in the Icelandic food industry. Nói Síríus has a tight-knit workforce of about 120 employees who share the goal of tickling the taste buds of Icelanders. Many different kinds of sweets are produced in the company’s impressive facilities at Hestháls 2-4. Síríus chocolate has been an indispensable part of Icelandic festivities for close to ninety years, and Nói Síríus is committed to being a leader in its field. The company aims to achieve this goal this by providing quality products and services that meet customers' highest standards according to international criteria. Product development is also a major part of Nói Síríus’ activities, and new and innovative products are introduced regularly, to the great delight of Icelandic consumers. At Nói Síríus, we believe that the best results will be achieved when our staff can freely apply their knowledge and skills, and when each individual has a sense of responsibility. In our work environment we have a common cause: to lay a solid foundation and build a robust, dynamic operation. ______ Nói Síríus to firma z silnie ugruntowaną pozycją w islandzkiej branży spożywczej. Zgrany zespół 120 pracowników łączy wspólny cel, jakim jest dostarczanie Islandczykom niezapomnianych wrażeń smakowych. Różne rodzaje słodyczy są produkowane w imponujących zakładach firmy przy ulicy Hestháls 2-4. Czekolada Síríus już od prawie 90 lat towarzyszy Islandczykom w celebrowaniu ważnych chwil, a sama firma Nói Síríus przez cały czas stara się pozostać liderem w branży. Aby osiągnąć ten cel, firma zapewnia klientom wysokiej jakości produkty i usługi, które spełniają ich najwyższe oczekiwania i są zgodne z międzynarodowymi standardami. Do głównych obszarów działalności Nói Síríus należy również poszerzanie gamy produktów pozwalające regularnie wprowadzać na rynek nowe i innowacyjne wyroby, które zachwycają islandzkich konsumentów. W Nói Síríus wierzymy, że najlepsze rezultaty przynosi zapewnienie personelowi swobody w wykorzystaniu posiadanej wiedzy i umiejętności, a także poczucie obowiązku u każdego pracownika. W naszym środowisku pracy łączy nas wspólny cel: zbudowanie solidnych podwalin pod intensywne i dynamiczne działanie.
Hestháls 2-4, 110 Reykjavík
Vöruframboð okkar
Nói Síríus framleiðir fjöldan allan af sælgætistegundum af mörgum stærðum og gerðum. Á meðal framleiðsluvara fyrirtækisins er súkkulaði af ýmsu tagi undir heitinu Síríus, pokavörur með brjóstsykri, karamellum, rúsínum ofl sælgæti undir Nóa heitinu, töflur með ýmsum bragðtegundum undir heitunum Opal og Tópas, hálsbrjóstsykur undir heitinu Háls og auðvitað konfekt og páskaegg. Nói Síríus er einnig umboðsaðili fyrir Kellogg´s morgunkorn, Pringles flögur, Valor sykurlaust súkkulaði og Carletti sælgæti. Nói Síríus byggir á gömlum grunni og nýtur þess að hafa haft tækifæri til að vaxa með þjóðinni um langt árabil.

51-200

starfsmenn

Nýjustu störfin

Engin störf í boði