
Mörk hjúkrunarheimili
Vellíðan, virðing og vinátta

Um vinnustaðinn
Á Mörk hjúkrunarheimili búa 113 heimilismenn á ellefu notalegum heimilum. Mörk starfar eftir Eden hugmyndafræðinni.
Mörk hjúkrunarheimili er hluti af Grundarheimilunum en þar starfar stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.
Markmið Grundarheimilanna er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Jafnlaunavottun
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Suðurlandsbraut 66, 108 Reykjavík
Jafnréttisstefna
Með jafnréttisstefnu Grundarheimilanna tryggjum við jafna stöðu starfsfólks og heimilismanna óháð kynferði, kynþætti, trú, kynhneigð og fleiri þáttum.
Mannauðsstefna
Markmið mannauðsstefnu Grundarheimilanna er að stuðla að stöðugri þróun mannauðsmála innan heimilanna og vellíðan og starfsánægju starfsmanna sinna. Til að tryggja stöðugar umbætur og gæði er mannauðsstefna Grundarheimilanna endurskoðuð árlega.
201-500
starfsmenn
Heilsa
Heilsustyrkur til líkamsræktar og sálfræðiþjónustu.
Skemmtun
Öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur ýmsa viðburði árlega fyrir stafsfólk og fjölskyldur þeirra.
Vinnutími
Stytting vinnuvikunnar.