Listahátíð í Reykjavík

Listahátíð í Reykjavík

Vinnustaðurinn
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Listahátíð í Reykjavík er þverfagleg listahátíð með áherslu á nýsköpun. Hún fer fram í hefðbundnum og óhefðbundnum rýmum um alla borg og teygir sig jafnframt út fyrir borgarmörkin. Listahátíð í Reykjavík hefur verið leiðandi afl í íslensku menningarlífi frá stofnun árið 1970. Hún var tvíæringur frá upphafi en á árunum 2005-2016 var hún haldin árlega. Frá árinu 2016 er hátíðin aftur orðin að tvíæringi. Mikil listræn fjölbreytni er einkenni Listahátíðar í Reykjavík. Hún vinnur með og leiðir saman opinberar stofnanir og sjálfstæða hópa listamanna á öllum sviðum menningarlífsins. Hún hefur beint frumkvæði að fjölda verkefna, í hefðbundnum og óhefðbundnum rýmum, er alþjóðleg listahátíð sem starfar á breiðum vettvangi. Listahátíð hefur starfað með eða flutt verk eftir mikinn fjölda listamanna. Menning og listir eru ekki forréttindi fárra heldur réttindi allra. Í stefnu Listahátíðar í Reykjavík er lögð rík áhersla á að hátíðin nái til fjölbreytts hóps áhorfenda og að aðgengi sé tryggt að viðburðum fyrir sem flesta. Aðgengismál í víðum skilningi eru höfð til hliðsjónar við allt skipulag hátíðarinnar. Listahátíð fer næst fram 30. maí -14. júní 2026.
Austurstræti 5, 101 Reykjavík

1-10

starfsmenn

Nýjustu störfin

Engin störf í boði