Límtré Vírnet ehf

Límtré Vírnet ehf

Vinnustaðurinn
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Límtré Vírnet er íslenskt iðnfyrirtæki og starfsstöðvar þess byggja á áratuga löngum framleiðsluferlum. Starfsfólk okkar er einnig með áratuga starfsreynslu við framleiðslu og sölu á gæðavörum fyrir byggingariðnaðinn á Íslandi. Starfsstöðvar okkar eru á þremur stöðum á landinu. Höfuðstöðvar okkar eru á Lynghálsi, þar sem innkaupadeild, fjármálastjóri og byggingadeild er starfrækt ásamt afgreiðslu á helstu lagervörum fyrirtækisins. Í Borgarnesi er framleitt valsað stál og ál til klæðninga utanhúss og innanhúss, ásamt framleiðslu á milliveggjastoðum úr stáli. Í Borgarnesi eru einnig reknar blikksmiðja og járnsmiðja. Á Flúðum er svo framleiðsla á límtré og steinullareiningum. Söludeildir fyrirtækisins er starfræktar á Lynghálsi 2 í Reykjavík og á Borgarbraut 74 í Borgarnesi.
Lyngháls 2, 110 Reykjavík
Nýjustu störfin

Engin störf í boði