Leikskólinn Brákarborg

Leikskólinn Brákarborg

AGI - VIRÐING - UMHYGGJA
Leikskólinn Brákarborg
Um vinnustaðinn
Í Brákarborg eru 120 börn skipt niður á sex deildir. Unnið er með opinn efnivið, jákvæðan aga og LAUSNAHRINGINN. Brákarborg er einn af elstu leikskólum í Reykjavík og hóf starfsemi sína árið 1952 í húsnæði að Brákarsundi 1. Við erum með 36 stunda vinnuviku fyrir fulla vinnu frá janúar 2021. Við erum í grónu hverfi milli Kleppsvegar og Sæviðarsunds og við Holtaveg til móts við Frístundamiðstöðina Glaðheima. Stutt er í Laugardalinn sem hefur upp á margt að bjóða og nýtist vel í leikskólastarfinu allan ársins hring.
Kleppsvegi 150-152, 104 Reykjavík