Lækur

Lækur

Sjálfræði, virðing og hlýja
Lækur
Um vinnustaðinn
Lækur er sex deilda leikskóli þar sem dvelja 129 börn. Leikskólinn er staðsettur í Kópavogsdal. Lækur er í tveim byggingum en Lækjavöllur, sem er á milli skólabygginganna, er nýttur sem útiskóli og er verið að þróa starfið þar með eldri börnum skólans. Sjálfræði, umhyggja og virðing eru einkunnarorð leikskólans. Með þessi orð að leiðarljósi leggjum við áherslu á að hvetja og styðja börn í leik og starfi. Í Læk er lagt upp með lýðræðislega nálgun og þannig komið til móts við þarfir hvers einstaklings. Lækur notar kennsluhætti sem kallast einstaklingsmiðað nám og sækja kenningar til Howard Gardner, Dewey, Montessori og Piaget. Hugtakið vísar til skipulags skólastarfs sem tekur mið af námslegum þörfum hvers einstaklings fremur en hópa. Barnið vinnur sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Kennarar og börn bera sameiginlega ábyrgð á náminu. Dæmi um vinnu eru námssvæði, lausnaleitanám t.d. barnaþing, rannsóknarhópar, valverkefni og ferilmöppur. Annað nátengt hugtakinu um einstaklingsmiðað nám er skóli án aðgreiningar sem líka tengist grunngildum okkar um jafnrétti og jafnan rétt til þátttöku. Skóli án aðgreiningar kom í kjölfar yfirlýsinga Barnasáttmálans þar sem kveðið er á um að aðildarríki viðurkenni rétt barns til menntunar og að öll börn njóti sömu tækifæra. Þannig er Lækur leikskóli sem án aðgreiningar nýtir sér einstaklingsmiðað nám til að ná sínum markmiðum.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Heimsmarkmiðin

Fyrirtækið er þátttakandi í 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna gegn hlýnun Jarðar.

Barnvænt sveitarfélag

Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá árinu 1996.

Heilsueflandi samfélag

Heilsueflandi samfélag er heildræn nálgun sem embætti landlæknis vinnur að í samstarfi og samráði við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök o.fl.
Dalsmári 21, 201 Kópavogur
Hreyfing

Frítt í sund

Líkamsræktaraðstaða

Líkamsræktarstyrkur

Vinnutími

Styttri vinnuvika