Kúnígúnd

Kúnígúnd

Sérverslun með vandaða gjafavöru
Kúnígúnd
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Verslunin Kúnígúnd ehf. var stofnuð árið 1982 og var fyrst um sinn til húsa í Hafnarstræti 9. Árið 1985 fluttist svo verslunin á Skólavörðustíginn, óx þar og dafnaði til ársins 2002 en þá fluttist hún á Laugaveg 53b. Árið 2008 opnaði Kúnígúnd aðra verslun í Kringlunni sem haustið 2017 var flutt í stærra rými innan Kringlunnar þar sem opnuð var glæsileg verslun og vöruúrvalið þrefaldað. Haustið 2016 opnaði Kúnígúnd á Glerártorgi, Akureyri og er því aðgengileg íbúum á norðurlandi. Í versluninni í Kringlunni og á kunigund.is má finna allt okkar vöruúrval, en á Glerártorgi er úrvalið heldur minna en ávallt reynt að hafa allar vinsælustu vörurnar á hverjum tíma á Glerártorgi. Vöruúrval hefur mikið breyst frá upphafi, frá svörtum pottum og íslenskum leir sem verslunin var þekktust fyrir þar til nú, að úrvali þekktustu framleiðanda Evrópu sem setja svip sinn á verslunina. Meðal framleiðanda sem Kúnígúnd leggur áherslu á eru Georg Jensen, Royal Copenhagen, Kosta Boda, Holmegaard, WMF, LeCreuset, Wusthof, Rosendahl og Villeroy & Boch. Frá upphafi hefur góð þjónusta, gott vöruúrval og fallegur frágangur til viðskiptavina verið aðalsmerki verslunarinnar. Við dreifum einnig vörum okkar til valdra verslana um land allt. Sérstök fyrirtækjaþjónusta er einnig í boði, þar sem aðstoðað er að vinna gjafavörur fyrir fyrirtæki sem vilja gleðja starfsfólk sitt og viðskiptavini, allt innpakkað og tilbúið til afhendingar eftir óskum.

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2024

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Moodup - Vinnustaður í fremstu röð 2024

Vinnustaður í fremstu röð er ný viðurkenning fyrir vinnustaði sem sýna í verki að þeir hugsa um starfsfólk sitt og tryggja því gott starfsumhverfi.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Jafnlaunastefna
Kúnígúnd leggur áherslu á að greiða jöfn laun og veita sömu kjör fyrir sambærilega frammistöðu, óháð kyni, kynþætti eða öðrum órökstuddum viðmiðum.
Þjónustustefna
Við leggjum mikið upp úr því að veita góða þjónustu. Því teljum við ekki síður mikilvægt fyrir góðan sölufulltrúa að hafa ríka þjónustulund. Við bjóðum reglulega upp á vörufræðslufundi fyrir starfsfólk svo það geti aukið sjálfsöryggi og þekkingu sína í starfi.

11-50

starfsmenn

Skemmtun

Hluti af því að skapa jákvætt og vinalegt starfsumhverfi er að hrista reglulega saman starfshópinn og bjóða upp á reglulega skemmtun. Árlegir viðburðir eru til dæmis glæsileg árshátíð, jólahlaðborð, keilumót, golfmót og fleiri smærri viðburðir á vegum starfsmannafélagsins.

Nýjustu störfin

Engin störf í boði

Mannauðsstefna
Við getum stolt sagt frá því að meðalstarfsaldur Heimilistækjasamstæðunnar er tæp 10 ár, út frá því má áætla að starfsánægja hjá okkar starfsfólki sé þónokkur. Við leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda ásamt því að veita ætíð framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar og samstarfsfélaga.