Kópasteinn

Kópasteinn

Gaman saman
Kópasteinn
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Leikskólinn Kópasteini er fimm deilda leikskóli í tveimur húsum með 98 börn á aldrinum 1-5 ára á aldursskiptum deildum. Skólinn opnar kl. 7:30 og lokar kl. 16.30. Í starfinu er lögð áhersla á sjálfssprottinn leik í allri sinni fjölbreytni, lífsleikni, tónlist og málrækt. Leikskólinn Kópasteinn hóf starfsemi árið 1964 og er fyrsti leikskólinn í Kópavogi. Kópasteinn stendur í ákaflega fögru umhverfi í hjarta Kópavogs við Borgarholtið. Kópavogskirkjan er á hæðinni fyrir ofan okkur, Listasafn Gerðar Helgadóttur blasir við og Salurinn. Þá er Borgarholtið hér allt í kring. Börnin þurfa því ekki að fara langt til að upplifa fagurt útsýni, fallegar byggingar og menningu. Vettvangsferðir eru tíðar í nærliggjandi stofnanir og nánasta umhverfi. Börnin fara í vinnustundir í tónlist, skapandi starfi, málrækt og fleiru. Í sjálfssprottna leiknum er notað valkerfi en þá er fjölbreyttur efniviður í boði í frjálsum leiktíma barnanna. Samverustundir eru daglega inni á öllum deildum. Þar er lesið og sungið og hin ýmsu mál rædd í barnahópnum. Endurvinnsla og endurnýting er samofin starfinu. Umhverfisfræðsla er stór þáttur af starfinu, á vorin og haustin er lögð áhersla á að vinna með náttúruna í víðum skilningi. Við sáum fyrir ýmsum jurtum, setjum niður kartöflur og höldum sérstaka Umhverfisdaga í skólanum. Fjölmenning er allnokkur við skólann og við fögnum henni í daglegu starfi.

Jafnlaunavottun

Heimsmarkmiðin

Barnvænt sveitarfélag

Heilsueflandi samfélag

Hábraut 1, 200 Kópavogur
Hreyfing

Frítt í sund

Líkamsræktaraðstaða

Líkamsræktarstyrkur

Vinnutími

Styttri vinnuvika

Nýjustu störfin

Engin störf í boði