
Kópahvoll
Gleði, samkennd, frelsi og hugrekki

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Leikskólinn Kópahvoll er við Bjarnhólastíg 26 og stendur á hæð rétt við Víghólinn, sem er friðað svæði. Í leikskólanum dvelja 74 börn í Kópahvoli og eru fjórar deildir við skólann. Einkunnarorð skólans eru gleði, samkennd, frelsi og hugrekki og tekur allt starf leikskólans mið af þeim.
Leikskólinn Kópahvoll starfar eftir hugmyndafræðinni uppeldi til ábyrgðar. Fræðin byggjast á því að einstaklingurinn geti tekið sjálfstæðar og siðferðislegar ákvarðanir varðandi eigin hegðun. Markmiðið er að styrkja einstaklinginn í að vera sá sem hann vill vera með hliðsjón af eigin sannfæringu frekar en að stjórnast út frá geðþótta annarra. Einnig að kenna börnum ábyrga hegðun og sjálfstjórn með því að gefa þeim tækifæri til að leiðrétta mistök sín og kenna þeim að uppfylla þarfir sínar á jákvæðan hátt.
Kópahvoll er einnig Réttindaskóli UNICEF en í því felst að byggja upp lýðræðislegt umhverfi, standa vörð um réttindi barna og rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpar börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í samfélaginu okkar.
Jafnlaunavottun
Heimsmarkmiðin
Barnvænt sveitarfélag
Heilsueflandi samfélag
Bjarnhólastígur 26, 200 Kópavogur
Hreyfing
Frítt í sund
Líkamsræktaraðstaða
Líkamsræktarstyrkur
Vinnutími
Styttri vinnuvika
Nýjustu störfin
Engin störf í boði