Jónar Transport

Jónar Transport

Vinnustaðurinn
Jónar Transport
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Jónar Transport bjóða upp á öflugar heildarlausnir fyrir fyrirtæki í flutningum til og frá landinu. Jónar Transport bjóða upp á flutninga bæði í sjó og í lofti, til og frá Íslandi og aðstoð við alla skjalagerð er tengist flutningum. Í þessu felst að Jónar Transport getur látið sækja eða flytja vöruna heim að dyrum birgja nánast hvar sem er í heiminum, komið henni í skip eða flugvél eftir þörfum og séð um alla tilheyrandi skjalameðhöndlun erlendis og hérlendis, ásamt þeirri vöruhúsa- og akstursþjónustu sem til þarf. Það færist í vöxt að viðskiptavinir sjá sér hag í því að kaupa heildarþjónustu í flutningum með því að sendingar séu afhentar frá dyrum til dyra, (svokölluð door to door þjónusta). Í raun er þetta bein afleiðing almennrar þróunar í vörustjórnun sem felst í því að efla tengslin og stuðla að auknu upplýsingaflæði í aðfangakeðju fyrirtækja. Jónar Transport skapa virðisaukandi þjónustu með því að koma inn í aðfangakeðju fyrirtækja með heildarlausnir í flutningum og vöruhúsamálum þannig að fyrirtækin sjálf geta beitt sér betur að sínum sterkustu hliðum.
Kjalarvogur 7-15 7R
Nýjustu störfin

Engin störf í boði