
indó sparisjóður 💸
Ekki banki. Ekkert bull.

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
indó er sparisjóður sem býður einfalda, gagnsæja og skemmtilega bankaþjónustu sem er laus við allt bull! Við bjóðum upp á launareikninga, sparibauka, lán og allskonar skemmtilegt. Framtíðarsýn indó er að að breyta bankakerfinu til hins betra svo það verði meira fyrir fólkið og fjölskyldur þeirra og minna fyrir bankana.
Við opnuðum formlega fyrir öll í janúar 2023 og eftir stöðugan vöxt er í dag fjórðungur Íslendinga kominn í viðskipti í indó.
Við erum í miklum vaxtarham og höfum aldeilis hrist upp í hlutunum - en við erum bara rétt að byrja! Þó við séum ekki stór vinnustaður, þá getum við öll, og þar með talið þú, haft mikil áhrif á fjármálakerfið á Íslandi 💸
Vilt þú breyta bankakerfinu á Íslandi með okkur? 🚀

Jafnvægisvog FKA
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni með það að markmiði að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir.

Aðildarfélag Festu fyrir samfélagsábyrgð
Í sinni einföldustu mynd felst samfélagsábyrgð í því að fyrirtæki, stofnanir og hverskyns skipulagsheildir axli ábyrgð og hafi uppbyggileg áhrif á umhverfið, stjórnarhætti og samfélagið.
Nóatún 17

🌈 indó teymið
Hjá indó vinnur fjölbreyttur hópur sem hefur það sameiginlegt að vilja breyta bankakerfinu til hins betra. Við erum lítið teymi sem vinnur náið saman þar sem við öll getum haft áhrif á vinnustaðinn, bankamarkaðinn og samfélagið.
🦩Ánægðustu viðskiptavinir á Íslandi
Við mótum indó með indóunum okkar og erum einstaklega stolt af því að eiga ánægðustu viðskiptavinina á Íslandi samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2024. Tvö ár í röð höfum við hlotið Meðmælingu Maskínu þar sem Íslendingar mæla oftast með indó til vina og vandamanna af öllum mældum fyrirtækjum.

11-50
starfsmenn
Fjarvinna
Búnaður
Vinnutími
Matur

Nýjustu störfin
Engin störf í boði