Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

HMS
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun hefur umsjón með stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, fasteigna, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála, skipulagsmála og mála er varða byggingarvörur og brunavarnir. Stofnuninni er ætlað að stuðla að því að jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði, m.a. með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Einnig skal stofnunin leitast við að tryggja að almenningur hafi aðgang að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði og í samræmi við þarfir hvers og eins, óháð efnahag og búsetu, þannig að almenningur hafi raunverulegt val um búsetuform. Stofnunin gegnir jafnframt samræmingarhlutverki, sinnir samstarfi við sveitarfélög um stjórnsýslu húsnæðis-og mannvirkja- og skipulagsmála og stuðlar að fyrirsjáanleika, skilvirkni og gæðum mannvirkjagerðar. Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun annast umsýslu Húsnæðissjóðs. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki og eru starfsmenn 190 talsins.

Jafnlaunavottun

Græn skref

ISO 27001 - Stjórnkerfi upplýsingaöryggis

Borgartún 21, 105 Reykjavík
EKKO Stefna
HMS hefur markað sér EKKO stefnu og starfar samkvæmt þeim verkferlum (Einelti, kynferðislegt ofbeldi, kynbundið ofbeldi, ofbeldi).

51-200

starfsmenn

Matur

Mötuneyti

Hreyfing

Íþróttastyrkur, hjóla og sturtuaðstaða

Vinnutími

Stytting vinnuvikunnar

Samgöngur

Samgöngusamningar

Skemmtun

Öflugt starfsmannafélag

Nýjustu störfin

Engin störf í boði