Húsasmiðjan

Húsasmiðjan

Vinnustaðurinn
Húsasmiðjan
Um vinnustaðinn
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku. Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú. Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira. Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2019

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2018

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2017

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2020

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2021

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2022

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Aðildarfélag Festu fyrir samfélagsábyrgð

Í sinni ein­föld­ustu mynd felst sam­fé­lags­ábyrgð í því að fyr­ir­tæki, stofn­an­ir og hverskyns skipu­lags­heild­ir axli ábyrgð og hafi upp­byggi­leg áhrif á um­hverf­ið, stjórn­ar­hætti og sam­fé­lag­ið.
Skútuvogur 16, 104 Reykjavík
Við viljum vera fyrirmyndarvinnustaður!
Við bjóðum upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda og höfum gaman að því að vera í vinnunni. Við berum virðingu fyrir hvort öðru og fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á að vera sífellt að læra eitthvað nýtt og auka þannig tækifærin á því að þróast í lífi og starfi.
Mannauðsstefna
Velgengni og árangur fyrirtækja veltur ekki hvað síst á mannauðnum sem þar starfar hverju sinni. Markmið Húsasmiðjunnar er að fyrirtækið hafi á að skipa, áhugasömu og metnaðarfullu starfsfólki sem sýnir frumkvæði og vilja til þess að taka virkan þátt í að skapa jákvætt og drífandi starfsumhverfi.

501-1000

starfsmenn

Heilsa

Við hvetjum starfsmenn til heilsueflingar með ýmsum hætti. Árlega er starfsmönnum boðið upp á bólusetningar gegn inflúensu, heilsufarsskoðun, íþróttastyrk og samgöngustyrk.Við hvetjum einnig starfsmenn til heilsueflandi verkefna eins og Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna og t.d hjóluðu hjólagarpar Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískrafts eitt árið 2.496 kílómetra- sem er á við tæplega tvo hringi í kringum Ísland.

Skemmtun

Við leggjum mikla áherslu á liðsheild og góð samskipti og hjá Húsasmiðjunni ríkir mjög góður starfsandi. Framkvæmdar eru mánaðarlegar mælingar á líðan og starfsumhverfi starfsfólks og niðurstöðum er fylgt eftir á markvissan hátt. Markmiðið er að vinna sífellt í því að búa til og viðhalda góðu og heilbrirgðu starfsumhverfi þar sem starfsfólki líður vel. Starfsmannafélag okkar er öflugt og stendur fyrir ýmsum uppákomum yfir árið og við leggjum mikið upp úr að hafa árshátíðina okkar sem glæsilegasta enda þykir okkur mjög gaman að skemmta okkur saman!

Jafnlaunavottun
Húsasmiðjan, hefur hlotið jafnlaunavottun og heimild til að nota jafnlaunamerki velferðaráðuneytisins, fyrst fyrirtækja á íslenska byggingavörumarkaðnum. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Það skiptir miklu máli að allir sitji við sama borð þegar kemur að launaákvörðunum og er jafnlaunakerfi ætlað að tryggja að starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf sé ekki mismunað í launum. Við berum jafnlaunamerki velferðaráðuneytisins stolt. Það er mikilvægt fyrir starfsfólk Húsasmiðjunnar að vita að til staðar sé stjórnkerfi sem tryggi að launaákvarðanir byggjast á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér mismunun vegna kyns eða annara ómálefnalegra þátta“
Fögnum fjölbreytileikanum
Hjá Húsasmiðjunni, Blómaval og Ískraft starfar fjölreyttur hópur rúmlega 500 starfsmanna. Við bjóðum alla velkomna óháð kyni, kynhneigð eða kynþætti. Við bjóðum fólki á "besta aldri" sérstaklega velkomið til okkar, því við kunnum að meta margskonar reynslu, þekkingu eða menntun, t.d. af smíðum, rafmagni, blómum, timbri, pípum eða bara almennri lífsreynslu. Við fögnum fjölbreytileikanum og trúum því að lífið sé eilífur lærdómur og tækifæri til að miðla. Við erum liðsheild sem starfar saman alla daga í fjölbreyttum störfum, við hjálpumst að, erum jákvæð og höfum gaman í vinnunni.
Vinnustaðurinn
Hjá Húsasmiðjunni, Blómaval og Ískraft starfar öflugur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu. Markmið okkar er að vera lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem ríkir góður starfsandi og sterk liðsheild, við viljum vera eftirsóknarverður vinnustaður. Við leggjum áherslu á jákvæð og góð samskipti, sýnum metnað í starfi og nýtum sérþekkingu okkar til þess að veita viðskiptavinum okkar úrvals þjónustu. Starfssemin er fjölbreytt og við erum stolt af því að geta þjónustað bæði stærri og smærri bæjarfélög um land allt, enda reka Húsasmiðjan og Blómaval 16 verslanir um land allt og að auki 4 útibú frá Ískraft.
Starfsþróun hjá Húsasmiðjunni
Störfin eru fjölbreytt og tækifæri til starfsþróunar víða. Hægt er að fara ýmsar leiðir til að þróast í starfi, t.d. axla meiri ábyrgð í eigin starfi, færast til í starfi innan starfsstöðvar eða á milli starfsstöðva ásamt því að færast í hærri stöður. Við erum svo heppin að mikið af okkar starfsmönnum eru með mjög langan starfsaldur, sá sem hefur hæstan starfsaldur hefur unnið hjá Húsasmiðjunni í 47 ár!