Húnaþing vestra

Húnaþing vestra

Húnaþing vestra - Pláss fyrir þig
Húnaþing vestra
Um vinnustaðinn
Kemurðu ekki barninu á leikskóla? - við eigum leikskólapláss. Ertu í of litlu húsnæði? - hjá okkur færðu meira pláss fyrir minni pening. Fer of mikill tími í umferðarteppur? - hjá okkur er nóg pláss fyrir bílinn þinni. Og störfin? Við eigum þau. Húnaþing vestra er vel staðsett, miðja vegu milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins en aðrir þéttbýliskjarnar Laugarbakki og Borðeyri. Heildarfjöldi íbúa er um 1250 og hefur farið vaxandi undanfarin ár. Uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur verið all nokkur síðustu ár og áform uppi um áframhaldandi húsnæðisuppbyggingu. Niðurstöður íbúakannana hafa leitt í ljós almenna ánægju íbúa í Húnaþingi vestra með sveitarfélagið sitt og þá þjónustu sem þar er veitt. Til dæmis hafa íbúar verið þeir ánægðustu á landinu með heilbrigðisþjónustu og þjónustu við aldraða, næst ánægðastir á landinu með menningarlíf og tónlistarskóla og þriðju ánægðustu á landinu með vörúrval svo fátt eitt sé nefnt. Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig og metnaðarfullt leik-, grunn- og tónlistarskólastarf. Gott framboð er af íþrótta-og tómstundastarfi sem er í sífelldri þróun. Sveitarfélagið er útvistarparadís, sundlaugin á Hvammstanga er fyrsta flokks, einnig er þar íþróttahús með þreksal og er félagsstarf afar fjölbreytt. Blómlegt menningarlíf er til staðar, kórar, leikflokkur, dansskóli, alþjóðlegt brúðuleikhús, menningarfélag o.fl. Hjá sveitarfélaginu starfa um 120 manns.

Jafnlaunavottun

Heilsueflandi samfélag

Hvammstangabraut 5

51-200

starfsmenn