Hörðuvallaskóli

Hörðuvallaskóli

Það er gaman í skólanum!
Hörðuvallaskóli
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Hörðuvallaskóli er hverfisskóli Kórahverfis í Kópavogi fyrir nemendur í 1. – 7. bekk. Skólinn leggur áherslur á jákvæðan skólabrag. Bekkjarfundir, samstundir, vinaliðaverkefni og núvitund stuðla að góðum og jákvæðum skólabrag. Að auki er skólinn í samstarfi við leikskóla í hverfinu varðandi vináttuverkefni Barnaheilla. Í Hörðuvallaskóla einkennist nám og kennsla af áhugaverðum og markvissum verkefnum. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á nám sitt og eiga gagnrýna samræðu um það. Eru meðvitaðir um hvert er stefnt og fá markvissa endurgjöf frá kennurum á leiðinni. Einkunnarorð skólans eru: Það er gaman í skólanum! Og tekur allt starf skólans mið af þeim. Hörðuvallaskóli er einn stærsti grunnskóli landsins og jafnframt einn sá öflugasti. Nemendur skólans fá tækifæri til að rækta styrkleika sína og við útskrifum ábyrga, sjálfstæða, sjálfsörugga og samskiptahæfa nemendur. Skólinn er eftirsóttur vinnustaður fyrir nemendur og starfsfólk og nýtur álits fyrir framsækið og þróttmikið starf. Samskipti innan skólans eru uppbyggileg og einkennast af gagnkvæmri virðingu.

Jafnlaunavottun

Heimsmarkmiðin

Barnvænt sveitarfélag

Heilsueflandi samfélag

Baugakór 38, 203 Kópavogur
Hreyfing

Frítt í sund

Líkamsræktaraðstaða

Líkamsræktarstyrkur

Vinnutími

Styttri vinnuvika

Nýjustu störfin

Engin störf í boði