Heilsugæslan Salahverfi

Heilsugæslan Salahverfi

Vinnustaðurinn
Heilsugæslan Salahverfi
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Heilsugæslunni í Salahverfi er fyrst og fremst ætlað að leggja áherslu á kjarnaverkefni heilsugæslunnar í þjónustu sinni, þ.e. almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu, meðgönguvernd, ungbarnavernd og skólaheilsugæslu. Heimahjúkrun á þjónustu heilsugæslustöðvarinnar er þjónað miðlægt af Heilsugæslunni í Kópavogi. Aðal þjónustusvæði Heilsugæslunnar í Salahverfi er Linda-, Sala-, Kóra- og Vatnsendahverfi í Kópavogi. Markmið Heilsugæslunnar í Salahverfi er að veita skjólstæðingum sínum góða þjónustu. Góð heilsugæsla einkennist af góðu aðgengi og samfelldri þjónustu sem veitt er á viðeigandi hátt. Starfsfólk Heilsugæslunnar í Salahverfi leggur þess vegna mikla áherslu á gott aðgengi að þjónustunni, sem síðan mun leiða af sér hin meginatriði góðrar heilsugæslu, þ.e. möguleikum á samfelldri þjónustu veittri á viðeigandi hátt.
Salavegur 2, 201 Kópavogur
Nýjustu störfin

Engin störf í boði