
Garminbúðin
Vinnustaðurinn

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Garminbúðin (RS Import ehf.) er umboðsaðili Garmin á Íslandi ásamt fleiri vörumerkjum eins og ARVA snjóflóðabúnaði, RAM festingum fyrir GPS, síma og tölvur í farartæki, Peak Design ljósmyndavörur, Powertraveller ferðahleðslukubbar og margt fleira. Við erum með heildsölu og okkar eigin verslun í húsnæði okkar að Ögurhvarfi 2, Kópavogi.
Við lifum á tækniöld og það á sannarlega við hjá okkur þar sem nýjar vörur viðhalda áhuga okkar og viðskiptavina á okkar vörumerkjum. Við getum með stolti sagt að Garminbúðin er þekkt fyrir góða vöruþekkingu og hágæða þjónustu.
Fyrirtækið er stolt af því að hafa verið útnefnt Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá 2017 af Viðskiptablaðinu og Keldunni ásamt því að vera eitt af 2% fyrirtækja sem hafa verið Framúrskarandi Fyrirtæki að mati Creditinfo frá 2018.
Ögurhvarf 2, 203 Kópavogur
Nýjustu störfin
Engin störf í boði