
Garðlist
Vinnustaðurinn

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Garðlist ehf. var stofnað árið 1989 og hefur frá upphafi sérhæft sig í viðhaldsþjónustu fyrir garða og græn svæði ásamt því að sjá um hálkuvarnir á veturna. Við þjónustum einstaklinga, fyrirtæki, hús- og bæjarfélög. Á þeim árum sem liðin eru frá stofnun hefur Garðlist ehf. vaxið stöðugt, bæði hvað varðar fjölda starfsmanna og fjölbreytni verkefna.
Á sumrin starfa um 130 manns hjá fyrirtækinu en á veturna eru um 50 fastir starfsmenn. Staðsetning fyrirtækisins er Tunguháls 7, 110 Reykjavík. Við búum yfir öflugum og fjölbreyttum tækjabúnaði til að geta veitt sem besta þjónustu, hvort sem er yfir sumarmánuðina eða vetrartíma.
Garðlist er Framúrskarandi fyrirtæki að mati Creditinfo frá 2016 til dagsins í dag. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.gardlist.is.
Tunguháls 7, 110 Reykjavík
Nýjustu störfin
Engin störf í boði