
Fossvogsskóli
Vinnustaðurinn
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Fossvogsskóli er hverfisskóli með 360 nemendur í 1. til 7. bekk og starfsmenn eru 55 talsins. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi í Fossvogsdalnum og eru greiðar göngu- og hjólaleiðir frá skólanum í Elliðaárdalinn og í Nauthólsvíkina sem eru meðal fallegustu útivistarsvæða borgarinnar.
Skólinn er þátttakandi í Grænfánaverkefninu og verkefninu um Heilsueflandi grunnskóla. Í skólanum er unnið með byrjendalæsi og áhersla á teymiskennslu sem byggist á mikilli samvinnu kennara. Skólinn vinnur í anda ,,Uppeldis til ábyrgðar“ og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Skólinn hefur á að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki.
Haðaland 26
Nýjustu störfin
Engin störf í boði