Fjármála og efnahagsráðuneytið

Fjármála og efnahagsráðuneytið

Vinnustaðurinn
Fjármála og efnahagsráðuneytið
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Meginhlutverk fjármála- og efnahagsráðuneytis felst í yfirstjórn opinberra fjármála og efnahagsmála. Ráðuneytið fer með málefni fjármálamarkaðarins, ber ábyrgð á bættum stjórnunarháttum og áætlanagerð, hefur með höndum virka stjórn mannauðsmála ríkisins og er leiðandi í umbótum og nýsköpun í rekstri ríkisins. Ráðherra, fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Ráðuneytið starfar sem ein heild og skiptist í eftirfarandi; skrifstofa efnahagsmála, skrifstofa fjármálamarkaðar, skrifstofa opinberra fjármála, skrifstofa skattamála, skrifstofa stjórnunar og umbóta, skrifstofa yfirstjórnar og skrifstofu rekstrar og innri þjónustu. Að auki starfar kjara- og mannauðssýsla ríkisins sem hluti af ráðuneytinu og telst hún vera ráðuneytisstofnun í skilningi 17. gr. stjórnarráðslaga. Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sviða og felur einum starfsmanna hverrar skrifstofu og sviðs staðgöngu fyrir skrifstofustjóra í fjarveru þeirra. Að auki geta verið starfræktir til lengri og skemmri tíma sérstakir verkefnahópar eða -teymi til að vinna að málefnum og verkefnum sem varða verksvið fleiri en einnar skipulagseiningar ráðuneytisins, skv. nánari ákvörðun hverju sinni.
Reykjavík, 101 Reykjavík
Nýjustu störfin

Engin störf í boði