
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
Vinnustaðurinn

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) er frjáls félagasamtök bifreiðaeigenda á Íslandi. FÍB er sjálfstætt félag óháð einstaklingum, fyrirtækjum, samtökum og stjórnvöldum. Yfir 17.000 félagar eiga aðild að FÍB.
Tilgangur félagsins er að sameina bifreiðaeigendur á Íslandi; efla umferðaröryggi, umferðarmenningu og gæta hagsmuna vegfarenda. Samstaða bifreiðaeigenda í einu neytendafélagi eflir og styrkir áhrifamátt þeirra. FÍB leitast við að skilja væntingar og þarfir félagsmanna og uppfylla kröfur um þjónustu og vörur.
FÍB veitir hagnýta tækni- og lögfræðiráðgjöf. FÍB félagar hafa aðgang að FÍB Aðstoð, vegþjónustu, 365 daga ársins og allan sólarhringinn. Félagar í FÍB njóta sérkjara hjá vefverslun félagsins. FÍB félagar njóta fríðinda eins öflugasta afsláttarklúbbs landsins og einnig víðtækra afslátta erlendis. Upplýsingar um afslættina eru aðgengilegar á heimasíðu FÍB og í Þjónustubók FÍB. FÍB gefur út FÍB Blaðið, öflugt tímarit með upplýsingum og fróðleik fyrir vegfarendur. FÍB birtir reglulega neytenda- og gæðakannanir sem nýtast í tengslum við rekstur fjölskyldubílsins. FÍB er aðili að FIA Alþjóða samtökum bifreiðafélaga sem eykur m.a. öryggi félagsmanna á ferðalögum erlendis.
FÍB veitir stjórnvöldum ráðgjöf og umsögn í öllum erindum er varða ökutæki og umferðarmálefni. Félagið vill stuðla að auknum valkostum og frelsi í samgöngum. FÍB vill tryggja hreyfanleika með hagsýni, umhverfisvitund og öryggi vegfarenda að leiðarljósi.
Skúlagata 19
Nýjustu störfin
Engin störf í boði