Efstihjalli

Efstihjalli

Fjölmenning - barnasáttmáli - sköpun
Efstihjalli
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Leikskólinn Efstihjalli er fimm deilda leikskóli í austurbæ Kópavogs og er staðsettur við Efstahjalla 2. Leikskólinn er í grónu hverfi í göngufæri við Fossvogsdal, Kópavogsdal og Digraneshæð. Í skólanum er stuðst við þrjá stólpa í öllu starfi, fjölmenningu, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og sköpun í allri sinni mynd. Samskipti eru grunnurinn sem halda stólpunum uppi. Málörvun og málrækt er svo rauði þráðurinn í gegnum allt starfið. Leikurinn í allri sinni fjölbreytni, inni sem og úti, er kjarninn í leikskólastarfinu og helsta námsleið barnanna. Í leiknum styrkist meðal annars sjálfsmynd barnanna, félagsfærni eflist og undirbúningur fyrir formlegt nám er mikill. Efstihjalli er ríkur af fjölbreyttum tungumálum og menningarlegum bakgrunni og er það jafnframt einn af styrkleikum skólans. Stefna leikskólans er að byggja upp einstaklinga sem eru: glaðir og sjálfsöruggir, hafa trú á eigin getu, sýna hjálpsemi og ábyrgðarkennd, bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum óháð trúar- eða lífsviðhorfum, kynþætti, uppruna, menningu og/ eða atgervi.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Heimsmarkmiðin

Fyrirtækið er þátttakandi í 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna gegn hlýnun Jarðar.

Barnvænt sveitarfélag

Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá árinu 1996.

Heilsueflandi samfélag

Heilsueflandi samfélag er heildræn nálgun sem embætti landlæknis vinnur að í samstarfi og samráði við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök o.fl.
Efstihjalli 2, 200 Kópavogur
Hreyfing

Frítt í sund

Líkamsræktaraðstaða

Líkamsræktarstyrkur

Vinnutími

Styttri vinnuvika

Nýjustu störfin

Engin störf í boði