
Búseti
Öryggi til framtíðar

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Félagið var stofnað 1983, á farsæla sögu og byggir á traustum grunni. Það er rekið án hagnaðarsjónarmiða og er í eigu félagsmanna hverju sinni. Félagið á um 1.400 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Búseti vinnur að hagsmunum félagsmanna og tryggir umsjón og fjölgun fasteigna með hagkvæmum hætti.
Samfélagsábyrgð og langtímahugsun eru samofin starfsemi og menningu Búseta.
Hjá Búseta starfar átján manna samheldinn og skapandi hópur þar sem kynjaskipting er jöfn. Markmið Búseta er að hafa yfir að ráða hæfu og áhugasömu starfsfólki sem skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi.
Fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks Búseta gerir vinnustaðinn skemmtilegan og lagt er upp úr að búa vel að starfsfólki.
Góðir stjórnarhættir leggja grunninn að ábyrgri stjórnun og ákvarðanatöku Búseta. Eins og fyrri ár hlutu Búseti og Leigufélags Búseta viðurkenningar frá CreditInfo og Viðskiptablaðinu á árinu 2023.
Aðildarfélag Festu fyrir samfélagsábyrgð
Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2023
Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2023
Síðumúli 10, 108 Reykjavík

11-50
starfsmenn
Nýjustu störfin
Engin störf í boði