Bakarameistarinn

Bakarameistarinn

Vinnustaðurinn
Bakarameistarinn
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Bakarameistarinn hefur verið í fararbroddi í sinni grein allt frá því hjónin Sigþór Sigurjónsson bakarameistari og Sigrún Stefánsdóttir stofnuðu fyrirtækið í janúar árið 1977. Opnun Bakarameistarans í Suðurveri olli svo að segja straumhvörfum á sínu sviði, enda höfðu Reykvíkingar ekki áður kynnst viðlíka þjónustu og vöruúrvali eins og Bakarameistarinn varð strax kunnur fyrir. Markmið fyrirtækisins voru snemma mjög skýr; að vera í fararbroddi með nýjungar og öfluga vöruþróun, bjóða upp á mikið vöruúrval, hraða og örugga þjónustu, góða fagmenn í bakstrinum og síðast en ekki síst að nota einungis gæðahráefni til að búa til úrvalsvöru. Þessum atriðum hefur ávallt verið haldið til haga í rekstrinum. Bakarameistarinn starfrækir nú 9 kaffihús á höfuðborgarsvæðinu og enda þótt starfsfólki hafi fjölgað úr 20 árið 1977 í rösklega 140 manns hafa markmið hans ekkert breyst og eru alltaf jafn skýr; við þjónum þér!
Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Nýjustu störfin

Engin störf í boði