
Álfaheiði
Deilum gildum okkar til að skapa betri heim

Um vinnustaðinn
Á leikskólanum Álfaheiði eru fjórar deildir en á þeim dvelja 79 börn á aldrinum eins til sex ára. Leikskólinn er staðsettur á sunnan verðum Digraneshálsi og er stutt í skemmtileg útivistarsvæði.
Starf leikskólans gengur út frá því að börn séu skapandi og getumiklir einstaklingar og því sé mikilvægt að búa til áhugavert umhverfi fyrir þau, jafn innandyra sem utan, þar sem leikur fær að njóta sín. Starfsfólk telur að börn þroskist best í jákvæðu, öruggu, hlýju og tilfinningaríku umhverfi þar sem borin er virðing fyrir þeim og skoðunum þeirra. Því er lögð áhersla á hlýlegt og örvandi umhverfi og er leikskólinn skreyttur með listaverkum eftir börnin.
Á leikskólanum Álfaheiði er unnið í anda námsefnisins Lífsmenntar e. Value Based Education en einkunnarorð leikskólans eru „Deilum gildum okkar til að skapa betri heim.“ Á leikskólanum hefur verið unnið markvisst með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2010. Álfaheiði er einnig Réttindaskóli UNICEF en í því felst að byggja upp lýðræðislegt umhverfi, standa vörð um réttindi barna og rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpar börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í samfélaginu okkar.

Jafnlaunavottun
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Heimsmarkmiðin
Fyrirtækið er þátttakandi í 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna gegn hlýnun Jarðar.

Barnvænt sveitarfélag
Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá árinu 1996.

Heilsueflandi samfélag
Heilsueflandi samfélag er heildræn nálgun sem embætti landlæknis vinnur að í samstarfi og samráði við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök o.fl.
Álfaheiði 1, 200 Kópavogur
11-50
starfsmenn
Hreyfing
Frítt í sund
Líkamsræktaraðstaða
Líkamsræktarstyrkur
Vinnutími
Styttri vinnuvika