Garðabær
Garðabær
Garðabær

Urriðaholtsskóli - umsjónakennarar á yngsta- og miðstig

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ fyrir börn á aldrinum 1-16 ára.

Auglýst er eftir umsjónarkennurum á yngsta- og miðstig til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Verið er að innleiða kennsluaðferðirnar Stýrð kennsla og fimiþjálfun.

Teymisvinna einkennir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum. Skólaárið 2026-2027 verða rúmlega 650 nemendur við skólann, þar um 530 nemendur í 1.-10. bekk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá
  • Að sinna daglegu fagstarfi og kennslu barna á sínu skólastigi
  • Vinnur að skólaþróun og uppbyggingu skólasamfélagsins ásamt samtarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu og tileinkar sér kennsluhætti skólans
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Sérhæfing eða reynsla af kennslu á sínu skólastigi
  • Áhugi á skólaþróun og faglegur metnaður
  • Reynsla af foreldrastarfi
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af teymisvinnu í grunnskóla æskileg

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Реклама створена 17. April 2026
Кінцевий термін подання заявки2. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Vinastræti 1-3
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ВикладанняPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Гнучкість
Професії
Мітки роботи