Garðabær
Garðabær
Garðabær

Heilsuleikskólinn Holtakot - matráður

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir matráð í eldhús í 100% starfshlutfall.

Vinnutími er frá klukkan 8:00 - 16:00.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.

Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Matráður hefur yfirumsjón með eldhúsi, sér um matseld, bakstur, sérfæði og skipuleggur matseðla, sér um pantanir og ber ábyrgð á rekstri eldhússins ásamt skólastjórnendum.
  • Matráður hefur umsjón með þvotti og þrifum og skráningu því tengdu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð þekking á næringarfræði og hollustufæði fyrir börn á leikskólaaldri.
  • Menntun á sviði matargerðar
  • Hreinlæti og snyrtimennska skilyrði
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og samstarfsvilji
  • Lipurð og færni í samskiptum
  • Reynsla af vinnu í eldhúsi eða mötuneyti er kostur
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna vinnustyttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn stafsmanna sem búsettir eru í Garðabæ
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Реклама створена 13. April 2026
Кінцевий термін подання заявки30. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Breiðamýri, 210 Garðabær
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Судимості немаєPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Пунктуальність
Професії
Мітки роботи