

5 ára deild Sjálandsskóla - deildarstjóri
Við leitum að deildarstjóra í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og ert til í að vinna með ólíkum einstaklingum eru miklar líkur á að þú fallir vel í hópinn okkar. Starfsandi er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.
Í 5 ára deildinni leggjum við áherslu á félagsfærni og útinám.
Við viljum útskrifa börn sem geta sett sjálfum sér og öðrum mörk. Við lærum í gegnum leik og förum í útinám einu sinni í viku þar sem við förum í vettvangsferðir, stíflugerðir ,eldað yfir varðeldi og margt fleira.
Einkunnarorð skólans er hraust sál í heilbrigðum líkama. Við förum í sund, íþróttir og jóga í hverri viku.
Áhugasömum gefst tækifæri til að starfa í lærdómssamfélagi þar sem sjónum er beint að faglegri þróun
Hefur þú áhuga á að bætast í okkar skemmtilega starfsmannahóp?
- Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
- Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
- Sér um foreldrasamstarf á deildinni
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)*
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
- Full vinnustytting sem er 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrar-, páska- og jólafrí
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna vinnustyttingar starfsfólks
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn stafsmanna sem búsettir eru í Garðabæ
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Ісландська























