Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Skipulagsstjóri

Vilt þú taka þátt í að þróa og móta starfsemi Reykjalundar til framtíðar ?

Reykjalundur endurhæfing ehf. leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi með mikið frumkvæði til að gegna stöðu skipulagsstjóra. Um nýtt starf er að ræða og hefur viðkomandi tækifæri til að móta starfið í samstarfi við stjórnendur.

Skipulagsstjóri heyrir beint undir forstjóra. Hann starfar náið með framkvæmdastjórn og öðrum stjórnendum, s.s. mannauðsstjóra, fjármálastjóra, gæðastjóra og forstöðumanni upplýsinga- og velferðartækni.

Um fjölbreytt og krefjandi starf er að ræða þar sem tækifæri gefst til að hafa áhrif á þróun og skipulag endurhæfingarþjónustu á Reykjalundi, til framtíðar litið. Starfið felur einnig í sér að leiða og samhæfa mikilvæg þverfagleg verkefni ásamt því að fylgja eftir framkvæmd stefnu, markmiða, árangursmælinga og umbóta.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórnun og samhæfing þverfaglegrar þróunar- og umbótaverkefna.
  • Þróun gagnadrifins skipulags fyrir alla starfsemi Reykjalundar.
  • Eftirfylgni stefnu, markmiða og verkefna Reykjalundar.
  • Verkefnastjórnun CARF faggildingar.
  • Þróun og samhæfing einstaka skipulagsþátta og verkferla.
  • Samhæfing verkefna á sviði öryggis-, viðbúnaðar- og aðgengismála.
  • Samhæfing möttöku og innleiðingar nýs starfsfólks.
  • Umsjón með og samhæfing starfsemistalna, lykiltalna og stjórnendaupplýsinga.
  • Þátttaka í þverfaglegum verkefnum á sviði gæða-, mannauðs- og upplýsingamála og velferðartækni.
  • Undirbúningur, innleiðing og eftirfylgni breytinga og umbótaverkefna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, verkefnastjórnun.
  • Reynsla af verkefnastjórnun, skipulagsþróun, breytingastjórnun eða öðrum sambærilegum verkefnum.
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Mjög góð skipulags- og greiningarhæfni ásamt hæfni til að fylgja verkefnum markvisst eftir.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og lausnarmiðuð nálgun.
  • Hæfni til að greina heildarmynd og þau atriði sem til þarf svo að hún komist í framkvæmd.
  • Hæfni til að starfa með ólíkum fagstéttum og stjórnendum og leiða verkefni þvert á starfseiningar.
  • Þekking á heilbrigðisþjónustu, endurhæfingu, gæðastjórnun og/eða CARF faggildingu er kostur.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Mjög góð tölvukunnátta og gagnahæfni.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, afriti af prófskírteinum og sakavottorði. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Ólöf Árnadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar - [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri - [email protected]

Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is

Реклама створена 4. November 2026
Кінцевий термін подання заявки18. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Тип роботи
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)