
Iðan fræðslusetur
Iðan er fræðslusetur í iðnaði og sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prent- og miðlunargreinum og matvæla- og veitingagreinum. Námsframboðið er fjölbreytt og í stöðugri þróun en markmið Iðunnar er að stuðla að framúrskarandi færni, framþróun og nýsköpun meðal starfsfólks í iðngreinum.
Leiðtogi málm- og véltæknigreina
Vilt þú efla hæfni starfsfólks í málm- og véltæknigreinum og vera hluti af leiðandi fræðslusamfélagi í íslenskum iðnaði?
Iðan fræðslusetur leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga til að leiða fræðslu og þjónustu Iðunnar í málm- og véltæknigreinum. Leiðtogi hefur frumkvæði að eflingu og þróun fræðslu fyrir málm- og véltæknigreinar í samræmi við þarfir iðnaðarins. Hann annast þarfagreiningu og skipulagningu á fræðslu og ber ábyrgð á birtingu námskeiðslýsinga á vef.
Leiðtogi málm- og véltæknigreina vinnur náið með deildarstjóra deildarinnar Þróun þekkingar ásamt því að starfa með leiðtogum annarra iðngreina og öðru starfsfólki Iðunnar. Hann á einnig í samstarfi við leiðbeinendur og ýmsa hag- og samstarfsaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þarfagreining og skipulagning á fræðslustarfi fyrir málm- og véltæknigreinar
- Þróa leiðir til fyrirtækjafræðslu fyrir málm- og véltæknigreinar
- Samstarf við lykilfólk í málm- og véltæknigreinum og uppbygging tengslanets
- Fyrirtækjaheimsóknir og eftirfylgni verkefna
- Samskipti við leiðbeinendur og aðra samstarfsaðila
- Þátttaka í viðburðum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Góð þekking á málm- og véltæknigreinum og starfsumhverfi þeirra
- Brennandi áhugi á fræðslu og þróun málm- og véltæknigreina
- Frumkvæði, leiðtogahæfni, framsækni og metnaður til að þróa og efla fræðslustarf
- Þjónustulund og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
- Menntun í kennslufræði og/eða reynsla af kennslu er kostur
Реклама створена 2. November 2026
Кінцевий термін подання заявки17. November 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Розташування
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (12)

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Viltu leiða stórt Evrópuverkefni?
EIMUR

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

QA On The Floor Specialist
Alvotech hf

Skipulagsstjóri
Reykjalundur

Viðskiptastjóri ferðaþjónustu
Íslandsstofa

Sérfræðingur í stofnkerfum
Míla hf

Verkefnastjóri í MICE
HL Adventure

Verkefnastjóri byggðaþróunar og orkumála
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Umhverfis- og framkvæmdarsvið - Teymisstjóri umhverfismála
Reykjanesbær