Fagkaup ehf
Fagkaup ehf
Fagkaup ehf

Sérfræðingur í notendaþjónustu

Fagkaup leitar að öflugum og þjónustulunduðum sérfræðingi í upplýsingatækni til að ganga til liðs við notendaþjónustu fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi og nútímalegu umhverfi.

Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað fyrir góðri þjónustu, sýnir frumkvæði og vill taka virkan þátt í áframhaldandi þróun upplýsingatæknimála hjá Fagkaupum. Starfið felst bæði í notendaþjónustu á þjónustuborði og kerfisstjórnun í nútímalegu Microsoft-umhverfi.

UT-teymi Fagkaupa þjónustar um 300 starfsmenn fyrirtækisins. Teymið er léttur og skemmtilegur hópur sérfræðinga sem leysir fjölþætt vandamál – og hjálpast að þegar á reynir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tæknileg aðstoð og þjónusta við notendur í Windows og Microsoft 365 umhverfi
  • Öryggis- og aðgangsmál í Microsoft Entra, Intune og Active Directory
  •  Bilanagreining og úrlausn vandamála í hugbúnaði og vélbúnaði
  •  Uppsetning, þjónusta og viðhald á tölvum, útstöðvum og tengdum búnaði
  • Gerð leiðbeininga fyrir starfsfólk til að nýta upplýsingatækni í sínum störfum
  • Greining og úrbætur á ferlum með það að markmiði að auka skilvirkni og bæta þjónustu
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun UT-umhverfisins fyrirtækisins í samstarfi við Upplýsingatæknistjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð færni til að greina og finna lausnir
  •  Reynsla af Microsoft Entra, Intune og Exchange Online er kostur
  •  Reynsla af öryggismálum í Microsoft 365 er kostur
  • Þekking á prenturum og prentumsýslu
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Öflugt félagslíf og virkt starfsmannafélag
  • Árlegt heilsufarsmat 
Реклама створена 31. October 2026
Кінцевий термін подання заявки15. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Тестування програмного забезпеченняPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Комп''ютерна безпекаPathCreated with Sketch.Управління ІТ-проектамиPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи