Skræða ehf
Skræða ehf

Hugbúnaðarsérfræðingur

Skræða ehf. þróar og selur hugbúnað, Signal EMOS, sem veitendur heilbrigðisþjónustu reiða sig á í daglegu starfi. Við leitum að lausnasérfræðingi sem setur sig inn í starfsemi viðskiptavina, greinir hvernig kerfið okkar mætir þörfum þeirra og leiðir innleiðingar frá greiningu og þar til verklag og hugbúnaður hafa sameinast.

Starfið krefst heildstæðrar og skipulagðrar nálgunar á vandamálum með víðtækar og fyrirbyggjandi aðgerðir í huga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining á klínísku og rekstrarlegu verklagi viðskiptavina og skjölun á þörfum þeirra 

  • Uppbygging innviða fyrir starfið með aðgengi annarra starfsmanna og viðskiptavina að nauðsynlegum upplýsingum 

  • Gerð innleiðingaáætlana og verkstjórn fram að gangsetningu 

  • Stillingar og uppsetning lausna innan kerfisins og framsetning valkosta með kostum og göllum 

  • Breytingastjórnun við innleiðingar: kynning, þjálfun og stuðningur við starfsfólk við nýtt verklag 

  • Fastur tengiliður tiltekins hóps viðskiptavina 

  • Greining vandamála, rakning að mögulegri sameiginlegri/víðtækari orsök til heildræna úrlausna 

  • Náið samstarf við hugbúnaðarteymi um úrbætur og tillögur um nýsmíði lausna á grundvelli þarfagreininga hjá viðskiptavinum 

  • Dagleg umsýsla: notendur og aðgangsstýringar, Microsoft 365, VPN og dreifing hugbúnaðar 

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur 

  • Reynsla af innleiðingum, lausnaráðgjöf, kerfisgreiningu eða sérfræðistörfum tengdum hugbúnaðarkerfum 

  • Reynsla af gerð kröfulýsinga, ferlarita eða innleiðingaáætlana er kostur 

  • Reynsla af breytingastjórnun og þjálfun notenda 

  • Færni í að greina þarfir notenda með takmarkaðan tæknibakgrunn og setja þær fram í skýrum, skriflegum lýsingum 

  • Kerfisbundin vinnubrögð við sannprófanir –  sýna fram á að lausnir virki umfram það sem prófað var handvirkt. 

  • Góð þekking á upplýsingatækni á borð við Windows, Linux, SQL, Active Directory / Entra ID og Microsoft 365 

  • Skilningur á grunnatriðum netkerfa (VPN, DNS, eldveggir) 

  • Reynsla úr heilbrigðisgeiranum er kostur 

  • Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð – þú tekur ábyrgð á og klárar það sem þú tekur að þér. 

  • Gott vald á íslensku er skilyrði, auk góðrar enskukunnáttu 

Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að vaxa í starfi og taka á sig aukna ábyrgð 

  • Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á fjarvinnu 

Реклама створена 30. October 2026
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
Розташування
Ármúli 15, 108 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Швидко навчаюсьPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ЧесністьPathCreated with Sketch.Судимості немаєPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.LinuxPathCreated with Sketch.Microsoft 365PathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.Управління ІТ-проектамиPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи