Sensa ehf.
Sensa ehf.
Sensa ehf.

Ert þú næsta tækniborðshetja Sensa?

Við leitum að lausnamiðuðum einstaklingi með góða þjónustulund og vilja til að læra og þróast í starfi.


Sensa leitar að sérfræðingi á tækniborð sem nýtur þess að hjálpa öðrum og vinna í hröðu og fjölbreyttu umhverfi. Á tækniborði starfar öflugur hópur fólks sem sinnir fjölbreyttum erindum viðskiptavina í gegnum síma og verkbeiðnakerfi. Mikilvægt er að geta unnið bæði sjálfstætt og í teymi – ásamt því að vera með einstaka þjónustulund.

Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem enginn dagur er eins, sem gerir vinnuna lifandi og áhugaverða. Þú munt eiga í beinum samskiptum við viðskiptavini og sjá áþreifanlegan árangur af vinnunni. Að auki felur starfið í sér þróunarmöguleika og tækifæri til að sérhæfa þig frekar innan upplýsingatækninnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við viðskiptavini í gegnum síma og fjartengingar
  • Lausnamiðuð bilanagreining og úrbætur
  • Umsýsla og aðstoð með Microsoft 365 umhverfi
  • Þátttaka í rekstri og viðhaldi á kerfum viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla eða þekking á rekstri útstöðva
  • Hæfileiki til að vinna skipulega að mörgum verkefnum á sama tíma
  • Hæfileiki til að læra og aðlagast nýrri tækni
  • Hæfileiki til að miðla þekkingu á skipulagðan máta
  • Microsoft gráður kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Bílpróf

Mátaðu þig við starfið:

Þetta starf hentar þér ef þú:

  • Nýtur þess að leysa vandamál
  • Hefur gaman af samskiptum við fólk
  • Vilt þróast í upplýsingatækni
  • Getur unnið sjálfstætt en líka í teymi

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn 
  • Heilsueflingarstyrkur
  • Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða 
  • Fyrsta flokks mötuneyti 
  • Sveigjanlegur vinnutími og möguleikar á fjarvinnu 
Реклама створена 27. October 2026
Кінцевий термін подання заявки8. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Тип роботи
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи