Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Leik­skóla­kennari í Vinabæ

Leik­skóla­kennari óskast til starfa við leik­skólann Vinabæ á Tálkna­firði. Um er að ræða 100% starf, en hlutastarf getur verið mögu­leiki.

Vinabær er hluti af Tálknafjarðarskóla, samreknum grunn- og leikskóla þar sem fram fer öflugt og framsækið skólastarf. Áhersla er lögð á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er öflugur græn­fána­skóli, heilsu­efl­andi skóli og UNESCO skóli.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar veitir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi, menntun og faglegri umönnun barnanna.
  • Vera leiðandi í að efla nám barnanna með þáttöku í leik.
  • Skráning og ígrundun meðal annars á tengslum og leik barna.
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs, gerð skólanámsskrár, mati á starfsemi leikskólans, innleiðingu á Heillasporum og fleiri verkefnum.
  • Teymisvinna, foreldrasamstarf og fleiri verkefni samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og aðalnámsskrá leikskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af uppeldis – og kennslustörfum með ungum börnum.
  • Sjálfstæð og skipulög vinnubrögð.
  • Góðir samvinnu- og samskiptahæfileikar.
  • Góð íslenskukunnátta.
Реклама створена 19. May 2026
Кінцевий термін подання заявки2. June 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Sveinseyri 140310, 460 Tálknafjörður
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Вчитель
Професії
Мітки роботи