Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Íþrótta­kennari — Tálkna­fjarð­ar­skóli

Tálkna­fjarð­ar­skóli er samrekinn grunn- og leik­skóli þar sem fram fer öflugt og fram­sækið skólastarf. Áhersla er lögð á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er öflugur græn­fána­skóli, heilsu­efl­andi skóli og UNESCO skóli.

Í grunnskólum Vesturbyggðar er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólanna er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Íþróttalíf er gott og fjölbreytt og margir möguleikar fyrir öflugan íþróttakennara.

Starfið hefur fasta starfs­stöð á Tálkna­firði en felur jafn­framt í sér mögu­leika á kennslu við tvo aðra grunn­skóla innan Vest­ur­byggðar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar veitir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast almenna íþrótta- og sundkennslu
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni í kennslu íþrótta
  • Hefur ánægju af að starfa með börnum og unglingum
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Getur tileinkað sér skólastefnu grunskólanna, svo sem Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor og fleira
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Faglegur metnaður
Реклама створена 19. May 2026
Кінцевий термін подання заявки2. June 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Sveinseyri 140310, 460 Tálknafjörður
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Викладання
Професії
Мітки роботи