Leirvogstunguskóli
Leirvogstunguskóli
Leirvogstunguskóli

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla

Leirvogstunguskóli leitar að leikskólakennurum og/eða starfsfólki leikskóla til starfa fyrir næsta skólaár.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 10.ágúst.

Það eru forréttindi að vinna í leikskóla, viltu koma og vera með ?

Í Leirvogstunguskóla eru um 112 börn á 6 deildum þar sem leikurinn er í öndvegi. Í skólanum er unnið framsækið og öflugt skólastarf þar sem kærleikurinn og gleðin er höfð að leiðarljósi. Unnið er markvisst eftir kennsluaðferðinni Leikur að læra sem gengur út á að kenna börnum hljóð, stafi, stærðfræði, form og liti í gegnum söngva, leiki og hreyfingu.

Leitað er eftir kennurum, uppeldismenntuðu fólki og/eða öðru fólki með reynslu til starfa.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Auk gilda Mosfellsbæjar hefur starfsfólk Leirvogstunguskóla sameinast um sitt eigið gildi sem er seigla.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Virðing og áhugi fyrir börnum
  • Fagleg framkoma
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og lausnarmiðað viðhorf
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort 

Styttri vinnuvika. Að jafnaði hættir starfsfólk kl.14:00 einn dag í viku, auk þess að fá frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar.

Реклама створена 19. May 2026
Кінцевий термін подання заявки2. June 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Laxatunga 70, 270 Mosfellsbær
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Швидко навчаюсьPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ЧесністьPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.ПунктуальністьPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Терпіння
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи