Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Gagnaforritari

Brennur þú fyrir bættum almenningssamgöngum, gögnum og nýjum tæknilausnum?

Ef svo er mælum við með að þú lesir áfram og alveg til enda :)

Gagnaforritari mun vinna að hönnun, uppbyggingu og rekstri gagnaumhverfis fyrirtækisins, með sérstakri áherslu á Microsoft Azure skýjalausnir. Hlutverkið felur í sér að byggja upp örugga og sjálfvirka gagnainnviði (Data Lake / Data Warehouse) sem styðja bæði hefðbundna viðskiptagreind (BI/mælaborð) og framtíðarnýtingu gagna í gervigreind (AI/ML).

Gagnaforritari tryggir að gögn frá ólíkum kerfum séu aðgengileg, rétt og skipulögð á staðlaðan hátt þannig að þau nýtist beint til ákvarðanatöku innan teymisins sem og sem efniviður inn í mállíkön (LLM), spálíkön og aðrar AI-lausnir.

Þetta er tækifæri til að koma inn í nýtt fyrirtæki (sem þó byggir á áratuga reynslu) og vera hluti af teymi sem er að setja upp nýjar tæknilausnir sem miðast við nútíma þarfir í almenningssamgöngum. Þetta er lifandi umhverfi þar sem við erum að vinna með fjölbreytta gagnastrauma m.a. rauntíma upplýsingum frá hátt í 160 vögnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Uppsetning og hönnun gagnainnviða: 

  • Hönnun, uppsetning og umsjón með gagnavatni (Data Lake) og/eða gagnavöruhúsi (Data Warehouse). 

  • Skipulagning gagnamódela og gagnastrúktúra með tilliti til afkasta og framtíðarsveigjanleika. 

 

Gagnaleiðslur og sjálfvirkni (ETL / ELT): 

  • Smíði, prófun og viðhald á sjálfvirkum keyrslum og gagnaleiðslum til að sækja, samræma og hreinsa gögn úr innri og ytri kerfum (t.d. gagnagrunnum, forritaskilum/API og þriðja aðila lausnum). 

  • Eftirlit með keyrslum, villuleit, vöktun og afkastabestun gagnastrauma. 

 

Skýrslugerð og mælaborð (BI & Visualization): 

  • Hönnun, smíði og viðhald á gagnvirkum mælaborðum og sjónrænum skýrslum (t.d. í Power BI, Tableau, Looker eða sambærilegum tólum). 

  • Samstarf við hagsmunaaðila og stjórnendur við að skilgreina lykilmælikvarða (KPI) og tryggja að mælaborð endurspegli réttar og tímabærar upplýsingar. 

 

Gagnagæði og stjórnarhættir: 

  • Tryggja áreiðanleika, nákvæmni og öryggi gagna í samræmi við lög um persónuvernd og bestu venjur í upplýsingaöryggi. 

  • Skjölun á gagnamódelum, uppruna gagna (data lineage) og helstu vinnuferlum. 

 

Þverfaglegt samstarf: 

  • Vinna náið með samstarfsfélögum og vöruþróun við að koma á góðum vinnubrögðum við skráningu og söfnun atburðagagna. 

  • Vera ráðgefandi um hvernig nýta megi gögn sem best til að efla vöruþróun og rekstrarstarfsemi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og starfsreynsla:  

  • Umsækjendur þurfa annað hvort að hafa háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, upplýsingatækni eða sambærileg menntun eða starfsreynslu sem nýtist í starfinu. Ekki er gerð krafa um að hafa hvort tveggja. Verkefni úr námi, lokaverkefni eða sjálfstæð hliðarverkefni (portfolio / GitHub) sem sýna vinnu með gögn eða gervigreind eru mikill kostur. 

Tæknilegur grunnur (Skilyrði) 

  • Góður grunnur í SQL: Færni í að skrifa fyrirspurnir, skilningur á töflutengslum og uppbyggingu hefðbundinna gagnagrunna. 

  • Forritunarkunnátta: Grunnfærni í Python (eða öðru sambærilegu máli), sérstaklega til gagnavinnslu, skriftugerðar eða gagnaflutnings. 

  • Gagnaskilningur: Góður skilningur á því hvernig gögn eru flutt, hreinsuð og mótuð til frekari greiningar. 

Tækni og gervigreind (Kostur eða áhugi) 

  • Skýjalausnir: Grunnþekking eða kynni af skýjalausnum eins og Microsoft Azure (t.d. Azure Data Factory, Azure SQL, Synapse eða Fabric) er kostur en ekki skilyrði. 

  • Gervigreind (AI): Brennandi áhugi á hagnýtingu mállíkana (LLM), RAG-arkitektúr og gervigreindarlausnum . 

  • Skýrslugerð (BI): Kynni af Power BI (eða sambærilegum greiningartólum eins og Tableau/Looker) til að setja fram tölfræði og mælaborð. 

Önnur hæfni

  • Lærdómsfús og forvitin(n): Átt auðvelt að tileinka þér ný tól, tækni og vinnulag með handleiðslu frá teyminu. 

  • Lausnamiðuð nálgun: Þorir að spyrja spurninga, leita svara sjálfstætt og takast á við óleyst verkefni. 

  • Skipulag og vönduð vinnubrögð: Metnaður til að skrifa læsilegan kóða, skrá niður vinnuferla og virða trúnað um gögn. 

  • Góð samskiptafærni: Getur unnið náið með öðrum forriturum og átt samtöl við hagsmunaaðila um hvaða upplýsingar þeim vantar. 

Fríðindi í starfi

Nú auðvitað frítt í Strætó ;) 

Реклама створена 30. September 2026
Кінцевий термін подання заявки11. October 2026
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Рідна мова
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
Розташування
Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Швидко навчаюсьPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Аналіз данихPathCreated with Sketch.Штучний інтелектPathCreated with Sketch.Дизайн бази данихPathCreated with Sketch.КреативністьPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.JavaScriptPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.Microsoft Power PlatformPathCreated with Sketch.ІновативнийPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.ПунктуальністьPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Business IntelligencePathCreated with Sketch.Терпіння
Професії
Мітки роботи