Kerecis
Kerecis
Kerecis

Sérfræðingur í Global Labeling

Kerecis | Reykjavík

Viltu taka þátt í þróun og skráningu lækningatækja úr fiskroði ?

Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum á sviði meðferðar á vefjaskaða og byggir tækni sína á hagnýtingu á roði og fitusýrum. Lækningavörur Kerecis eru notaðar til meðhöndlunar á margskonar líkamsskaða; m.a. á skurðsárum, þrálátum sárum, og brunasárum til að flýta fyrir gróanda og að styrkja vef eftir skurðaðgerðir og slys.

Kerecis er alþjóðlegt lækningatækjafyrirtæki og hluti af Coloplast samsteypunni og starfsmenn starfa meðal annars á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum.

Vörur Kerecis eiga þátt í bata þúsunda einstaklinga um allan heim árlega.


Kerecis leitar að metnaðarfullum og nákvæmum einstaklingi til að ganga til liðs við Global Labeling teymið í Reykjavík.

Starfið hentar nákvæmum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur auga fyrir smáatriðum, vill vinna þvert á teymi og hafa raunveruleg áhrif í alþjóðlegu heilbrigðisumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning, útgáfa og viðhald á vörunúmerum og merkingum, fylgiseðlum og markaðsefni. 

  • Tryggja að gögn og merkingaupplýsingar séu réttar, uppfærðar og aðgengilegar í viðeigandi gagnagrunnum. 

  • Yfirfara markaðs- og kynningarefni til að tryggja faglega, samræmda og rétta framsetningu sem samræmist kröfum mismunandi landa. 

  • Taka þátt í markaðsskráningum, vöruþróun og úttektum. 

  • Vinna með skráningar-, gæða-, þróunar-, framleiðslu- og markaðsdeildum að verkefnum sem styðja alþjóðlegan vöxt Kerecis. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi. 

  • Reynsla af tæknilegri skjölun, gæðakerfum eða vinnu í reglugerðartengdu umhverfi. 

  • Þekkingu á lækningatækjum, vörumerkingum og alþjóðlegum reglugerðarkröfum er kostur. 

  • Þekking á BarTender, NiceLabel eða sambærilegum merkimiðakerfum er kostur. 

  • Góð ensku kunnátta, skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð. 

  • Jákvætt hugarfar og vilji til að vinna í samstarfi við alþjóðlegt teymi.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Jökull Úlfarsson, yfirmaður Global Labeling, [email protected]

Реклама створена 23. September 2026
Кінцевий термін подання заявки11. October 2026
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Sundstræti 38, 400 Ísafjörður
Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Швидко навчаюсьPathCreated with Sketch.Проектування процедурPathCreated with Sketch.Впровадження процедурPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.nákvæmniPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.ГнучкістьPathCreated with Sketch.Написання текстівPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.СкрупульозністьPathCreated with Sketch.Робота під тискомPathCreated with Sketch.Терпіння
Професії
Мітки роботи