
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma.
Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum.
Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.

Sérfræðingur í áhættustýringu - tímabundið starf
Rekstraráhætta og viðnámsþróttur leitar að metnaðarfullum einstaklingi í tímabundið starf í eitt ár sem sérfræðingur í áhættustýringu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróa og sjálfvirknivæða lausnir fyrir eftirlit, gagnasöfnun, mælaborð og skýrslugjöf.
- Styðja við eftirlit áhættustýringar og hlítni bankans við lög og ytri kröfur.
- Þróa verkfæri sem styðja við umsýslu og eftirfylgni með áhættumötum.
- Styðja við úttektir og prófanir á öryggisvörnum, öryggisvöktun og viðbrögðum við öryggistengdum atburðum.
- Nýta gervigreind til að þróa og byggja áhættu- og öryggissjónarmið inn í lausnir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Frumkvæði og drifkraftur.
- Reynsla af forritun.
- Hefur áhuga á gervigreind og að tileinka sér ný verkfæri.
- Þekkir gagnagrunna, Microsoft Power Apps og Power Automate.
- Nákvæmni í vinnubrögðum.
- Lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun.
Fríðindi í starfi
Frekari upplýsingar um starfið veita Stefán Þór Björnsson, forstöðumaður Rekstraráhættu og viðnámsþróttar og öryggisstjóri, og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningastjóri.
Реклама створена 21. September 2026
Кінцевий термін подання заявки4. October 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
АнглійськаOptional
Розташування
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Тип роботи
Навички
DriveПроактивнийАналіз данихPrecisionНезалежністьАвтоматичне тестуванняAutomation
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (4)
Схожі вакансії (8)

Senior Software Engineer, Simulation Platform
Aveo ehf.

Gagnaforritari
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Technical Artist (Mid-level/Senior), Unreal Engine 5
Aveo ehf.

Graphics Programmer
Fenris Creations

Senior Infrastructure Engineer
Fenris Creations

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (Quality Engineer)
SnerpaPower

Backend Software Engineer
Asana

Senior Backend Software Engineer
Asana