Careflux ehf.
Careflux ehf.
Careflux ehf.

Forritari / Programmer

Ertu drífandi manneskja með brennandi áhuga á forritun og gervigreind? Langar þig að vinna að nýjum lausnum fyrir heilbrigðiskerfið? Þá erum við hjá Careflux að leita að þér. Við þróum hugbúnaðarlausnir sem nýta mállíkön og önnur gervigreindarlíkön til að auðvelda heilbrigðisstarfsfólki vinnuna ásamt því að greina og bæta meðferð sjúklinga. Okkur vantar öflugan forritara, með góða þekkingu á Python, SQL, HTML og JavaScript, í teymið okkar sem samanstendur af forriturum, læknum og sérfræðingum í máltækni og gervigreind.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem forritari hjá Careflux tekur þú þátt í þróun á hugbúnaðarlausnum fyrir heilbrigðiskerfið. Sú vinna felst í þróun á viðmótum fyrir heilbrigðisstarfsfólk og fyrir gerð þjálfunargagna gervigreindarlíkana, forritun á bakenda, ásamt vinnu með hugbúnaðarteymum annarra fyrirtækja sem nota okkar lausnir í gegnum beina tengingu og forritunarskil. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • BS gráða í tölvunarfræði eða sambærilegt nám

  • Reynsla af þróun í Python, SQL, HTML og Javascript.

  • Reynsla af þróun bæði fram- og bakenda

  • Áhugi á net- og hugbúnaðaröryggi er kostur

  • Geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi

  • Reynsla í notkun Azure skýjaþjónustu kostur.

Fríðindi í starfi

Vinna þétt í litlu teymi í fyrirtæki sem er með spennandi möguleika á markaði og er að undirbúa vaxtarfasa. Möguleiki á kaupréttum sem hluti af launakjörum.

Реклама створена 6. November 2024
Кінцевий термін подання заявки1. December 2024
Зарплата (щомісячно)850 000 - 950 000 kr.
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
Розташування
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Розробка бекендаPathCreated with Sketch.Веб-розробка
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи