Wise leitar að Microsoft 365 sérfræðingi
Wise leitar að öflugum aðila í vaxandi teymið okkar en starfið felst í ráðgjöf og þjónustu tengdum Microsoft 365 viðskiptalausnum í skýinu, stafrænum umbreytingaverkefnum og öðrum spennandi verkefnum, auk þátttöku í vöruþróun fyrir hóp viðskiptavina í hinum ýmsu geirum atvinnulífsins.
Við leitum að kraftmiklu, sjálfstæðu fólki sem á auðvelt með að vinna í hóp, hefur áhuga á hugbúnaði, nýjustu tækni við hönnun og þróun hugbúnaðar.
Sérstaklega leitum við að fólki sem hefur áhuga og/eða reynslu af einhverju af eftirfarandi:
-
Microsoft 365 (SharePoint, Teams, OneDrive, o.s.frv.)
-
Microsoft Power Platform (Power BI, Power Apps, Power Automate)
-
Ferla- og þarfagreiningar fyrir viðskiptavini
-
Hönnun- og þróun lausna
-
Ráðgjöf
-
Innleiðingar og stuðningur við viðskiptavini
-
Menntun á sviði upplýsingatækni eða önnur reynsla sem nýtist í starfi
-
Lausnamiðuð hugsun og aðlögunarhæfni
-
Færni í samskiptum
-
Þekking og/eða áhugi á Microsoft 365 lausnum
-
Þekking og/eða áhugi á Power Platform
-
Reynsla af forritun er kostur
-
Reynsla af skjala- og gæðamálum er kostur