Alfreð
Alfreð
Alfreð

Vöruþróunarstjóri/CPO

Alfreð leitar að drífandi reynslubolta til að leiða vörustýringu og viðskiptaþróun fyrirtækisins á Íslandi sem og á markaðssvæðum erlendis. Staða vöruþróunarstjóra heyrir beint undir framkvæmdastjóra og felur í sér náið samstarf við stjórnendur og sérleyfishafa Alfreðs í Evrópu.

Alfreð er vaxandi hugbúnaðar- og þjónustufyrirtæki með góða ímynd og sterka stöðu. Vöruþróunarstjóri Alfreðs fær því einstakt tækifæri til að setja mark sitt á framtíðina sem lifandi hluti af alþjóðlegu fyrirtæki.

Við hjá Alfreð notum HEST, skammstöfun fyrir gildin okkar, til að ná settu marki: Hagkvæmni, einfaldleiki, sköpunargleði og traust. Þessi gildi eru okkar þarfasti þjónn í að samstilla aðgerðir og vöruþróunarstjóri ber ábyrgð á því að vöruþróun og viðskiptaáætlanir séu í þeim anda.

Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð og yfirstjórn vöru- og viðskiptaþróunar
Mótun framtíðarsýnar fyrir núverandi og nýjar vörur
Greining tækifæra á markaði
Umsjón með þróun og innleiðingu nýjunga
Þarfagreining, hugmyndavinna og notendarannsóknir
Gerð og eftirfylgni vegvísa (e. roadmaps)
Gerð og eftirfylgni verklýsinga (e. user stories)
Vinna með hönnuðum, forriturum og öðrum sérfræðingum
Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og sérleyfishafa
Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsreynsla eða menntun sem nýtist í starfi
Árangursrík reynsla af vörustýringu hugbúnaðarlausna og viðskiptaþróun
Reynsla af gerð og eftirfylgni vegvísa (e. roadmaps)
Reynsla af gerð og eftirfylgni verklýsinga (e. user stories)
Reynsla af þróun alþjóðlegra hugbúnaðarlausna er kostur
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Framúrskarandi samskiptahæfni
Lausnamiðaður hugsunarháttur
Mjög góð enskukunnátta
Auglýsing stofnuð12. maí 2023
Umsóknarfrestur29. maí 2023
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMeðalhæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Akralind 8, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar