Vindorkan sækir í sig veðrið
Við Íslendingar eigum lítt beislaða og endurnýjanlega auðlind í vindinum, sem ekki er hörgull á hér á landi. Við hjá Landsvirkjun ætlum að gera þessa auðlind að þriðju stoðinni í orkuvinnslu fyrirtækisins, með vatni og jarðvarma, enda er framtíðarsýn okkar sjálfbær heimur, knúinn endurnýjanlegri orku.
Við leitum að verkefnastjóra með þekkingu á orkumálum sem hefur áhuga á að taka þátt í að móta framtíðina með okkur. Starfið reynir á samskipti við hagaðila því umhverfis og skipulagsmál eru okkur hugleikin. Þú þarft að hafa brennandi áhuga á mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði og drifkraft, og hafa hæfni til að vinna sjálfstætt.
-
stýring og þróun vindorkuverkefna
-
samskipti við hagaðila og kynningar innan og utan Landsvirkjunar
-
gagnaúrvinnsla og greining á vindauðlindinni
-
þátttaka í vinnuhópum auk almennrar ráðgjafar innanhúss
-
háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem verk-, hag- eða viðskiptafræði
-
þekking á skipulagsmálum og reynsla af samskiptum við hagaðila innanlands
-
reynsla af stýringu verkefna
-
mikill áhugi á orkumálum