
EFLA hf
EFLA er leiðandi þekkingarfyrirtæki sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði og tækni.
Starfsfólk samstæðunnar er um 600 talsins á Íslandi og erlendis. EFLA er með svæðisskrifstofur víðsvegar um landið og dótturfélög erlendis.
EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem um fjórðungur starfsfólks starfar. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri

Viltu taka þátt í mótun samfélagsins?
Við leitum að verkefnisstjóra í skipulagsmálum
EFLA leitar að öflugum starfsmanni með sérfræðiþekkingu í skipulagsmálum á Samfélagssvið fyrirtækisins. Viðfangsefnin felast í vinnu við fjölbreytt aðal- og deiliskipulagsverkefni og ýmsa umhverfis- og sérfræðivinnu í tengslum við skipulagsáætlanir.
Sérstaklega er sóst eftir starfsmanni með þekkingu á borgarhönnun, byggðarþróun og landnotkun og reynslu í verkefnastjórnun fjölbreyttra verkefna á sviði stefnumörkunar-og skipulagsmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, s.s. skipulagsfræði, arkitektúr og landslagsarkitektúr
Reynsla af skipulagsmálum og verkefnastjórnun
þekking á vistvænu skipulagi og áætlanagerð
Þekking á landfræðilegum upplýsingakerfum (GIS)
Skipulagshæfileikar og góð almenn tölvukunnátta
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Gott vald á íslensku og ensku, þekking á norðurlandamáli er kostur
Samskiptahæfni og lausnamiðuð hugsun
Helstu verkefni og ábyrgð
Hönnunar- og verkefnastjórnun
Skipulagsáætlanir, aðallega í þéttbýli
Almenn skipulagsráðgjöf
Stefnumótun tengd skipulagsmálum
Auglýsing birt9. júlí 2021
Umsóknarfrestur20. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)

