Veritas
Veritas
Veritas

Vilt þú sinna fjölbreyttum störfum innan fjármála og taka þátt í þróun til framtíðar?

Við hjá Veritas erum að bæta í teymið okkar og leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi til að taka virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum innan fjármála- og rekstrarsviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefnin snúa að færslu fjárhagsbókhalds, afstemmingum, reikningagerð ásamt innheimtu. Einnig felur starfið í sér þátttöku í þróun fjármálaferla með það að markmiði að auka skilvirkni, bæta upplýsingaflæði og nýta framtíðartækni til hins ýtrasta með endurhönnun starfa og verklags.

Hjá Veritas færðu tækifæri til að starfa í framsæknu og tæknivæddu umhverfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu, stöðugar umbætur og nýtingu stafrænna lausna sem auðvelda vinnuna, bæta gæði upplýsinga og styðja við betri ákvarðanatöku.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði eða önnur menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Áhugi á stafrænum lausnum, sjálfvirknivæðingu og þróun vinnuferla
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfni og nákvæmni
  • Reynsla af Business Central er kostur
  • Greinandi hugsun og hæfni til að sjá tækifæri til einföldunar og umbóta
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Fríðindi í starfi
  • Heilsu- og líkamsræktarstyrkur
  • Sálfræðistyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Mötuneyti, morgun- og hádegisverður
Auglýsing birt3. júlí 2026
Umsóknarfrestur8. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar