Viðskiptastjóri ferðaþjónustu Hópbíla
Hópbílar leitar að metnaðarfullum og drífandi einstakling í stöðu viðskiptastjóra ferðaþjónustu Hópbíla.
Starfið felst í samskiptum við innlenda og erlenda viðskiptavini, tilboðs- og samningagerð og sölu á þjónustu Hópbíla er tengist langferðabílum fyrirtækisins.
Viðkomandi mun starfa á sölu- og markaðssviði eignarhaldsfélagsins PAC1501, en Hópbílar er hluti af samstæðu nokkurra ferðaþjónustufyrirtækja í eigu félagins. Undir þeim hatti eru í dag félögin Airport Direct, Bus Hostel, Gray Line, Hópbílar og Reykjavík Sightseeing.
Hjá félögunum starfar breiður hópur starfsmanna sem hefur yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu að ráða. Við leggjum metnað í að vera fyrsti kostur í hópferðum hér á landi þar sem gæði, þekking og þjónusta eru leiðarljós okkar í daglegu starfi.
- Sala og þjónusta við viðskiptavini
- Tilboðsgerð
- Skipulagning og umsjón ferða
- Önnur tilfallandi störf
- Reynsla eða menntun tengd ferðaþjónustu er æskileg
- Góð enskukunnátta
- Önnur tungumálakunnátta er kostur
- Góð almenn tölvuþekking
- Þjónustulund og skipulagshæfni
- Þekking á Íslandi er kostur