Sýn
Sýn
Sýn

Viðskiptastjóri

Sýn óskar eftir að ráða kraftmikinn, framsækinn og þjónustulundaðan einstakling í stöðu viðskiptastjóra á fyrirtækjasviði. Helstu verkefni snúa að því að sækja nýja viðskiptavini ásamt því að styrkja og viðhalda núverandi viðskiptasambönd. Hlutverkið felur í sér að auka sölu til núverandi viðskiptavina, kynna nýjungar í vöruframboði og greina þær þarfir sem markaðurinn kallar eftir. Í boði er krefjandi og ábyrgðarmikið framtíðarstarf í frábæru teymi. Starfið krefst leiðtogahæfileika, sjálfstæðra og faglegra vinnubragða.

Helstu verkefni:

  • Greiningar á fjarskiptamarkaði
  • Öflun nýrra tekna á fyrirtækjasviði
  • Uppsölur til núverandi viðskiptavina
  • Sækja nýja viðskiptavini
  • Þjónusta við fyrirtæki
  • Þarfagreiningar
  • Samningagerð
  • Tilboðsgerð
  • Greiningar á reikningum fyrirtækja
  • Viðhalda og styrkja viðskiptasambönd

Ábyrgðarsvið:

  • Ábyrgð á skilgreindum hóp fyrirtækja.
  • Byggja upp og efla tengsl við lykilviðskiptavini Vodafone
  • Ráðgjöf og sala til viðskiptavina
  • Tilboðs- og samningagerð

Hæfniskröfur:

  • Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg
  • Menntun sem nýtist í starfi er æskileg en ekki nauðsynleg
  • Áhugi og reynsla af sölumennsku
  • Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af markmiðasetningu og keppnisskap
  • Frumkvæði í starfi, sjálfstæð vinnubrögð, snyrtimennska og stundvísi

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní n.k.

Nánari upplýsingar fást með því að senda tölvupóst á [email protected]

Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningarvefinn okkar.

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Hver erum við?

Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport og Já.is. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Auglýsing birt23. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar