Félag íslenskra rafvirkja
Félag íslenskra rafvirkja
Félag íslenskra rafvirkja

Viðburðastjóri í tímabundið hlutastarf

Félag íslenskra rafvirkja (FÍR) var stofnað árið 1926 og fagnar því 100 ára afmæli á þessu ári. Félagið leitar að metnaðarfullum og skipulögðum viðburðarstjóra til að leiða viðburði á félagsins vegna afmælisins.

Um er að ræða 20% hlutastarf á tímabilinu 1. mars til 1. október 2026. Viðburðastjóri mun bera ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd viðburða á vegum félagsins í tilefni afmælisins, í nánu samstarfi við formann og starfsfólk. Um er að ræða spennandi og afmarkað verkefni á tímamótaári í sögu félagsins, þar sem gefst tækifæri til að móta og skapa eftirminnilega viðburði í tilefni 100 ára afmælis FÍR.

Helstu verkefni og ábyrgð


– Skipulagning og heildaryfirsýn yfir afmælisviðburði
– Gerð verk- og tímaáætlana
– Samskipti við birgja, samstarfsaðila og þátttakendur
– Umsjón með framkvæmd viðburða

Menntunar- og hæfniskröfur

– Hefur reynslu af skipulagningu viðburða eða sambærilegum verkefnum
– Er framúrskarandi í skipulagi og tímastjórnun
– Býr yfir góðri samskiptahæfni og þjónustulund
– Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði
– Hefur góða yfirsýn og hæfni til að halda utan um fleiri en eitt verkefni samtímis

  • Menntun sem nýtist í starfi kostur
Fríðindi í starfi
  • Matur í mötuneyti niðurgreiddur
  • Allur kostnaður sem fellur til vegna starfsins greiddur
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Viðburðastjórnun
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar